1.
Sjóðurinn heitir Lögverndarsjóður náttúru og umhverfis og er stofnað til hans í því skyni að veita fjárhagsstuðning til að fá úrlausn vegna lögfræðilegra álitamála er snerta náttúru- og umhverfisvernd. Aðsetur sjóðsins er lögheimili stjórnarformanns hans hverju sinni.
2.
Markmið sjóðsins er að styðja málafylgju vegna lögfræðilegra álitamála sem að mati stjórnar sjóðsins geta varðað almenna hagsmuni um verndun náttúru og umhverfis og safna og varðveita fé í þessum tilgangi. Sjóðurinn getur ekki átt beina aðild að málarekstri.
3.
Stofnaðilar sjóðsins eru náttúru- og umhverfisverndarsamtök og var hann stofnaður í ágúst 2002. Stjórn sjóðsins getur veitt fleiri samtökum aðild að sjóðnum enda gangist þau undir samþykktir þessar og leggi fram fé í sjóðinn. Allir (stjórnvöld, einstaklingar, félög, stofnanir og fyrirtæki) geta lagt fram fjármagn til sjóðsins.
4.
Stjórn sjóðsins skipa formenn náttúru- og umhverfisverndarsamtaka sem eru aðilar að sjóðnum og leggja fé til hans eða staðgenglar sem þeir skipa í sinn stað. Stjórnin velur formann sjóðsstjórnar úr sínum hópi til árs í senn og skiptir að öðru leyti með sér verkum. Stjórn sjóðsins skal annast fjárgæslu sjóðsins og sjá um greiðslur úr honum, sbr. 6. gr. Stjórnin skal seta nánari reglur um styrkveitingar og hugsanlega endurgreiðslu styrkja í sjóðinn. Tillögur um greiðslur þurfa stuðning 2/3 hluta stjórnarmanna til að ná fram að ganga. Stjórn sjóðsins skal halda a. m. k. einn fund á ári.
5.
Aðeins má nýta eignir sjóðsins til að greiða fyrir verk er tengjast beint markmiðum hans, sbr. 2. og 9. gr. Í álitamálum ræður meirihluti stjórnar. Atkvæði formanns sjóðsstjórnar hefur tvöfalt vægi falli atkvæði jafnt.
6.
Stjórn sjóðsins skal fyrir 1. maí ár hvert taka saman yfirlit um innborganir, ávöxtun og greiðslur úr sjóðnum síðastliðið almanaksár. Farið skal með upplýsingar um hverjir greiða í sjóðinn sem trúnaðarmál nema viðkomandi aðilar óski sérstaklega eftir að það komi fram.
7.
Stjórn sjóðsins skal árlega tilnefna skoðunarmenn ársreiknings hans. Skoðunarmenn skulu fara yfir framlögð gögn um fjármál sjóðsins og staðfesta sannleiksgildi þeirra. Ársreikningur sjóðsins undirritaður af skoðunarmönnum skal lagður fyrir sjóðsstjórnina til samþykktar.
8.
Stofnskrá þessari getur meirihluti aðila að sjóðnum breytt, enda sé um það full samstaða í stjórn hans. Tillögur um breytingar á stofnskrá þarf að leggja fyrir sjóðsstjórn með 90 daga fyrirvara.
9.
Telji stjórn sjóðsins að ætlunarverki hans sé lokið skulu eigur hans yfirfærðar í vörslu Háskóla Íslands til að styðja nemendur til framhaldsnáms í umhverfisrétti.