2024 – Strandsvæðaskipulag Austfjarða
Um var að ræða málshöfðun á hendur íslenska ríkinu vegna Strandsvæðaskipulags Austfjarða. Markmiðið var að fella skipulagið úr gildi vegna margvíslegra ágalla en einna helst vegna þess að það gerir ráð fyrir laxeldi í Seyðisfirði. Hópur landeigenda sótti málið.
Málinu var vísað frá á tveimur dómsstigum, bæði í Héraðsdómi og í Landsrétti. Er það mat dómstóla að þar sem skaðinn er ekki enn skeður hafi málshefjendur ekki lögvarða hagsmuni til þess að stefnan fái efnislega meðferð. Málinu er því lokið í dómskerfinu.
2016 – Vegagerð um Gálgahraun
Mál Hraunavina vegna lagningar nýs vegar um Gálgahraun í Hafnarfirði. Tilefni styrksins var að standa straum af lögfræðikostnaði vegna áfrýjunar níu dóma til Hæstaréttar. Um var að ræða dóma sem féllu í héraði árið 2014 á þá leið að handtökur níu einstaklinga sökum mótmæla í Gálgahrauni vegna lagningar nýs Álftanesvegar voru ekki dæmdar ólöglegar og ríkið var ekki dæmt til að greiða hlutaðeigandi einstaklingum skaðabætur. Niðurstaða Hæstaréttar var að fresta ákvörðun refsingar (sektargreiðslu), sem félli niður haldi ákærðu almennt skilorð í tvö ár. Hæstiréttur leit sérstaklega til þess að fyrir ákærðu hafi vakað að standa vörð um náttúruverðmæti.
https://www.visir.is/g/2016345062d/omar-og-felagar-fa-ekki-miskabaetur-vegna-handtakna-i-galgahrauni
2009 – Gjábakkavegur
Mál Péturs M. Jónassonar vatnalíffræðings gegn umhverfisráðherra, Skipulagsstofnun og Vegagerðinni til að fá úrskurði Skipulagsstofnunar vegna lagningar nýs Gjábakkavegar (365) hnekkt. Stefnandi taldi mikil náttúruverðmæti í húfi m.a. landslagsheild spillt, möguleikar til að nýta ferskvatnslind svæðisins takmarkaðir, og hrygningarsvæði bleikjunnar í vatninu ógnað vegna hugsanlegra ofauðgunar. Málið var talið varða almenna hagsmuni um verndun náttúru og umhverfis. Margir aðilar, samtök, einstaklingar og opinberar fagstofnanir höfðu lagt sig fram um að reyna að koma í veg fyrir lagningu vegar um svæðið. Dómsmálið tapaðist.
https://timarit.is/page/7487166#page/n115/mode/2up
2006 - Norðlingaölduveita
Áhugahópur um verndun Þjórsárvera og einstaklingar honum tengdir hlutu styrk vegna málshöfðunar gegn umhverfisráðherra f.h. íslenska ríkisins, Landsvirkjun og Skipulagsstofnun til þess að fá úr því skorið hvort löglega hafi verið staðið að mati á umhverfisáhrifum Norðlingaölduveitu. Stefnan gekk út á ógildingu matsins á umhverfisáhrifum og úrskurðar þ. v. umhverfisráðherra vegna matsins. Héraðsdómur hafði áður kveðið upp úrskurð þess efnis að málið væri dómtækt og staðfest aðild Áhugahópsins og tiltekins hóps einstaklinga. Málið var talið hafa víðtækt almennt gildi. Málaferlin leiddu til jákvæðrar niðurstöðu fyrir Héraðsdómi. Málinu var ekki áfrýjað.
https://www.visir.is/g/2006377604d/domur-vegna-set-og-midlunarlons-afangasigur
2002 – Álver í Reyðarfirði
Hjörleifur Guttormsson félagi í Náttúruverndarsamtökum Austurlands hlaut styrk til að standa straum af kostnaði vegna málaferla í tengslum við lögmæti umhverfismats og veitingar starfsleyfis álvers í Reyðarfirði. Matið var dæmt ólöglegt af Hæstarétti.
https://www.visir.is/g/2005506090377